Í dag byrjaði ég í námi sem hundaþjálfari. Þar læri ég þjálfun, atferli og umhirðu hunda. Ég er að læra hjá hundastefnunni sem er skóli á vegum Jóhönnu Reykjalín (Hunda Hönnu) og Olgu Bjarkar. En einnig koma þar fyrir nokkrir vel valdir gestakennarar.
Hunda-Hanna er útskrifaður hundaþjálfari frá Sheilu Harper International Dog Behavioral and Training school í UK.
Hún er einnig með BA-próf í Uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands og starfar nú sem deildarstjóri á leikskólanum Lyngholt, Reyðarfirði ásamt hundaþjálfarastarfinu. Hunda-Hanna á tvo griffon töffara, Villa og Samma, og Rhodesian Ridgeback skvísuna Söru.
Olga Björk er hundaþjálfari frá Sheila Harper International Dog Behavioral and Training school í UK. Hún hefur einnig lagt stund á nám í Líffræði við Háskóla Íslands og farið á fjölda námskeiða um hundaþjálfun innan- sem utanlands og má þar helst nefna sumarnámskeið hjá Turid Rugaas í Noregi. Olga er heimavinnandi hundaþjálfari og á Miniature Schnauzerinn Pésa og Rhodesian Ridgeback gaurinn Pardus. Olga var einn af umsjónarmönnum síðunnar hundar.is meðan hún var og hét.
Ég hlakka mikið til að læra meir um hunda en ég hef áður gert og í framhaldinu að geta hjálpað fleira fólki að finna lausnir á vandamálum þeirra í sambandi sínu við hundinn.